Íslendingasögur

Brennu-Njáls saga

Brennu-Njáls saga, eða Njála eins og hún er gjarnan kölluð, er lengst og þekktust Íslendingasagna og þykir einstaklega vel skrifuð. Sagan sem spannar tímabilið frá ca. 950-1020 er bæði stórbrotin og flókin og segja má að í henni sé að finna margar sögur. Fyrirferðamestar eru sögurnar eru um Gunnar á Hlíðarenda annars vegar og svo um Njál og syni hans hins vegar. Þá er þar einnig saga kvenskörungsins Hallgerðar langbrókar. Menn eru ekki á einu máli um áreiðanleika eða sagnfræðilegt gildi sögunnar. Þó er alveg óhætt að slá því föstu að helstu persónur sögunnar voru til og að margir eða flestir atburðir sem frá er sagt áttu sér stað í raun og veru. Hins vegar er ekki víst að þeir hafi gerst með nákvæmlega þeim hætti sem sagan vill vera láta.

HÖFUNDUR:
Óþekktur
ÚTGEFIÐ:
2011
BLAÐSÍÐUR:
bls. 539

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :