SKÁLDSAGA

Sæfarinn

Í sögunni Sæfarinn lætur Verne hetjur sínar ferðast í kafbáti um óravegu undirdjúpanna. Hafði slíkt aldrei verið gert og menn þekktu lítið til lífsins undir yfirborði sjávar. Hvatinn að sögunni var bréf sem annar þekktur rithöfundur sendi honum, frú George Sand. Í bréfinu hældi hún Verne á hvert reipi fyrir sögurnar Fimm vikur í loftbelg og Ferðina að miðju jarðar. Svo bætti hún við: „Ég vona svo bara að þú farir með okkur í svipað ferðalag um undirdjúpin og látir hetjur þínar ferðast þar um í einhvers konar neðansjávar köfunarbúnaði.“ Í kjölfarið skapaði Verne einn litríkasta byltingarforingja bókmenntanna þar sem Númi (Nemo) skipstjóri er.  Í upphaflegu útgáfunni byggði Verne á byltingu Pólverja gegn Rússlandi árið 1863. Þá var Númi pólskur aðalsmaður sem barðist gegn Rússum, en ekki indverskur. Þegar Hetzel, útgefandi Verne´s, las bókina fyrst neitaði hann að gefa hana út, þar sem Frakkar höfðu þá nýlega gengið í bandalag með Rússum. Endurskoðaði Verne söguna nokkrum sinnum áður en hann og Hetzel ákváðu að láta verða af útgáfu hennar. Sagan hefur haft víðtæk áhrif, ekki síst fyrir persónusköpun, en Númi (Nemo) skipstjóri hefur t.a.m. verið fyrirmynd margra síðari tíma hetja og þá hafa raunverulegir kafbátar borið nafn þessa fyrirrennara síns, Nautilius.


HÖFUNDUR:
Jules Verne
ÚTGEFIÐ:
2011
BLAÐSÍÐUR:
bls. 212

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :