Ein athyglisverðasta sjálfsævisaga sem komið hefur út eftir Íslending frá því Íslendingar yfirleitt hófu að skrifa sögur af sjálfum sér er án efa sjálfsævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði. Þetta þriðja bindi skrifaði hann í Gimli í Nýja-Íslandi árið 1929 og það kom svo út árið 1930. Einhverra hluta vegna hefur sögunni ekki verið hampað jafn mikið og öðrum slíkum sögum frá svipuðum tíma og er það mikil synd því hún yrði mörgum án efa mun áhugaverðari og skemmtilegri lestur en þær. Sigurður hafði nefnilega það sem marga sjálfsævisöguritara vantar sem er í fyrsta lagi óbeisluð og fölskvalaus frásagnargleði í bland við ,,temmilegan" skort á ritskoðun. Hann trúði augljóslega á eigið ágæti og tók sjálfan sig ekki of hátíðlega og síðast en ekki síst þá selur hann ekki frásögn sína undir ok tilbúinna gilda einhverra vafasamra hefða. Einlægni Sigurðar gerir söguna tímalausa því um leið og hún gefur glögga mynd af samtíma höfundar er hún lýsing á mannlegu eðli sem stendur óhaggað þrátt fyrir sveiflur tímans.
-
- HÖFUNDUR:
- Sigurður Ingjaldsson
- ÚTGEFIÐ:
- 2017
- BLAÐSÍÐUR:
- bls. 210
AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA
:
- ...