SKÁLDSAGA

Leiðin til skáldskapar

Leiðin til skáldskapar

Hugleiðingar um upptök og
þróun skáldhneigðar Gunnars Gunnarssonar. 

Leiðin til skáldskapar eftir Sigurjón Björnsson kom fyrst út í ritröðinni Smábækur Menningarsjóðs árið 1964.  Var hún 15 bókin í þeirri ritröð.  Undirtitill bókarinnar er: Hugleiðingar um upptök og þróun skáldhneigðar Gunnars Gunnarssonar.  Sem sálfræðingur kafar Sigurjón djúpt í bækur hans til að leita að höfundinum Gunnari og finna út hvað það er sem knýr hann áfram.  Grunnviðfangsefnið er sagan Fjallkirkjan sem að öðrum verkum ólöstuðum verður að teljast mesta höfundarverk Gunnars.  Sigurjóni verður vel ágengt í rannsóknum sínum og má jafnvel segja að þessi bók sé skyldulesning allra þeirra sem vilja skilja Gunnar Gunnarsson og verk hans, enda skrifar Sigurjón á einum stað: „Fjallkirkjan er betri kennslubók í sálarfræði en margar bækur, sem gefnar eru út undir því heiti.". 


HÖFUNDUR:
Sigurjón Björnsson
ÚTGEFIÐ:
2011
BLAÐSÍÐUR:
bls. 133

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :

  • ...