Stundum hefur það verið sagt um okkur  Íslendinga að við hlúum illa að okkar eldri skáldum og verkum þeirra og það á  sannarlega við um þessi ævintýri Þorsteins Erlingssonar, sem alltof fáir  þekkja. Birtust þau öll fyrst í tímaritinu Dýravininum, en var svo síðar safnað  saman í eina bók undir heitinu Málleysingjar.   Kannski hefur það haft áhrif á litla útbreiðslu þessara ævintýra að þau  voru flokkuð þetta þröngt, sem er mikill skaði, því fá íslensk ævintýri hafa  víðtækari vísanir, en einmitt þessi ævintýri Þorsteins.  Sögurnar hafa t. a. m. á sér nokkuð  austurlenskan blæ, sem sést á m. a. á nöfnum persónanna, en þar er Þorsteinn að  kallast á við ævintýrin ,,Þúsund og ein nótt”, sem hann hafði mikið dálæti á  sem barn.
          Þeir sem hafa átt því láni að fagna að  alast upp með ævintýrum Þorsteins Erlingssonar vita gjörla hve skemmtileg þau  eru og mikið í þau spunnið.  Það er trú  undirritaðs að þau séu í hópi bestu ævintýra sem skrifuð hafa verið hér á landi  og að þau ættu að skipa mun veglegri sess í bókmenntasögu okkar en þau  gera.  Það er í raun skammarlegt að við  skulum ekki sjá sóma okkar í að halda slíkum menningarperlum á lofti.  
- 
            
            
 - HÖFUNDUR:
 - Þorsteinn Erlingsson
 - ÚTGEFIÐ:
 - 2011
 - BLAÐSÍÐUR:
 - bls. 138
 
AÐrar bÆkur
          SEM ER VERT AÐ SKOÐA
          :
        - ...
 



 FLETTIBÓK
 ePUB: Niðurhal
 iPad /iPod / iPhone